mánudagur, 19. janúar 2015

Peysan Saga

Við hjónin ákváðum að skreppa í smá bíltúr að Reykjanesvita. Þar var hávaðarok og brimið frussaðist út um allt. Eiginmaðurinn tók þessa mynd af mér en ég var í lopapeysunni Sögu sem ég prjónaði úr afgöngum fyrir ári síðan. Í peysuna fóru 20 litir, mun fleiri en uppskriftin segir. Mig langaði bara að nýta afgangana. Fleiri myndir eru á Ravelry




sunnudagur, 18. janúar 2015

Röndótt heklað teppi

Eftir viku hjá sjúkraþjálfara finnst mér ég vera nokkurn vegin verkjalaust og ákvað að prufa að hekla. Ég telst seint vera góð í þeirri iðju en finnst gaman að hekla a.m.k. eitt verkefni á ári. T.d. gerði ég teppið sem allir voru að gera um árið (uppskriftin frí á Garnstudio.com) en var tvö ár með hléum að klára teppið (á samt eftir að hekla boðunginn efast um að ég klári það).
Sá þetta flotta teppi sem Avis á sewingbesidethesea.worldpress.com var að gera en leiðbeiningarnar eru á þessari síðu, Það sem mér finnst áhugaverðast er að það er skipt um liti í hverri umferð svo þú getur nýtt alla þína afganga. Og um leið er verið að kenna mér eitthvað nýtt í heklinu sem mér finnst ekki leiðinlegt.


Afgangarnir, flest er merino blend fæst í Rúmfatalagernum, síðan nokkrar Smart, átti eina heila þessa bleiku.




föstudagur, 16. janúar 2015

John Lennon

Gleymdi að sýna ykkur stöðuna á John Lennon en mér tókst að sauma þó nokkuð mikið fyrir aðgerðina. Ég á aðallega eftir að sauma með ljósum lit og þá er ég búin.

miðvikudagur, 14. janúar 2015

Smá hlé

á öllu handavinnutengdu eftir axlaraðgerðina. En samt sem áður hugsar maður ekki um annað, t.d. hvað mig langar til að gera og að kaupa. Ég hef ákveðið að reyna (vonandi tekst mér það) að klára verkefni sem ég hef byrjað á. Ég er með tvær peysur á mig og það vantar einungis ermarnar og aðra byrjaði ég á fyrir 2 árum. Er ekki kominn tími að klára hana gætið þið spurt og ég er alveg innilega sammála. Set inn myndir svo þið sjáið hvað ég á lítið eftir.


 Einnig á ég bara eftir að setja rennilás á lopapeysu eiginmannsins og er meira segja búin að kaupa lásinn.  Þar sem ég nýbyrjuð að sauma út (þótt ég gerði einhver verk fyrir löngu) þá á ég nokkur verk sem eru í vinnslu en eru samt langt komin. Stardust Fairy á ég einungis eftir að setja perlurnar á og sauma nokkur spor með glitþræði frá DMC. Glitþráðurinn er reyndar blending filament og þú notar hann tvöfaldan. Erfitt finnst mér að nota hann vegna hvað hann raknar svo mikið upp og krullast svo saman. Lausnin við upprakningu var að hafa einn þráð tvöfalt eins og í Loop aðferðinni, vonandi skiljið þið hvað ég meina. Hef því í raun enga lausa enda og ekkert raknar upp. Reyni líka að hafa þráðinn stuttan og sauma í tveimur skrefum en ekki einu.

Næstu mánuði ætla ég að nýta afganga og garn sem ég hef fengið gefins, keypt á útsölu eða unnið í happdrætti en við prjónavinkonurnar höfum happdrætti annað slagið þegar við hittumst. Það er sniðug síða á Facebook sem heitir Prjónalykkjan Prjónum saman. Þar er hægt að finna undirsíðu sem heitir prjónað úr afgöngum. Gott að fá hugmyndir að afgangaprjóni.
Yngsta dóttirin er reyndar byrjuð að prjóna sér vettlinga úr garnhaugnum mínum en ég er ein af þeim sem kaupi mér garn áður en êg er klára önnur verkefni. Dóttirin er að prjóna Bella´s Mittens úr Nappað Tógv frá Snældunni sem er hægt að kaupa úr Litlu Prjónabúðinni.
Ég er einnig að spá að eyða ekki meira en 5000 kr, á mánuði í handavinnuna. Ef ég eyði minna má ég nota peninginn næsta mánuð á eftir. Núna er ég búin að eyða 1400 kr. keypti uppskrift frá Mirabilia. Má því eyða 3600 kr. í viðbót.
´

Óskalistinn minn

Úr garnhaugnum
Hanska á mig
Sjalið Spectra eftir Stephen West
Ungbarnapeysuna Maile

Krosssaumurinn
Nýja uppskriftin Silver Tea Moon frá Mirabilia
Father Sun
Wisard´s view

mánudagur, 5. janúar 2015

Super Santa eftir Alan Dart

Loksins kláraði ég þennan flotta jólasvein. Uppskriftin finnst hér. Það tók mig allan gærdaginn að setja hann saman enda prjónaði ég aftur hattinn, slánna, skeggið og hluta af annarri erminni. Sveinki stóð ágætlega án þess að vera í skóm, þar sem ég setti poka af grjónum í búkinn. Ég límdi boðunginn í staðinn fyrir að sauma hann á. Sparaði þannig smá tíma. Mér finnst uppskriftirnar eftir Alan Dart skemmtilegar og mjög flottar.


Sveinki í góðum félagsskap




föstudagur, 2. janúar 2015

Mother moon

Mother moon finnst í bókinni Bewitching Cross Stitch eftir Joan Elliot. Í bókinni eru mörg munstur sem mig langar að sauma út m.a. Father Sun, Wisard´s view, Celtic Wheel Cushion.


John Lennon

Eiginmaðurinn er aðdáandi Bítlanna og er John Lennon í sérstöku uppáhaldi. Ég fannst því við hæfi að sauma út mynd fyrir hann. Fann á netinu krosssaumsmynd sem ég keypti. Byrjaði á henni um jólin og er að reyna að klára sem mest áður en ég fer í aðgerðina á öxlinni í næstu viku.